Inlegg Lava Hammers
Hennar hlið á gærkvöldinu
Hann var í furðulegu skapi í gærkvöldi. Við höfðum ákveðið að hittast á
kaffihúsi yfir einum drykk eða svo. Ég hélt að það væri mér að kenna,
þar sem ég var heldur sein vegna þess að ég var að versla með stelpunum
og gleymdi mér aðeins. Hann minntist samt ekkert á það. Okkur gekk
ekkert að ná saman, svo ég hélt að það yrði kannski þægilegra að vera
einhverstaðar þar sem við gætum verið ein, svo við fórum á mjög
rómantískt veitingahús. En hann var ennþá í ferlega furðulegu skapi. Ég
reyndi að hressa hann og var farin að spá í hvort að þetta væri bara ég
eða hvort eitthvað alvarlegt væri í gangi. Ég spurði hann, en hann
svaraði því neitandi. En ég var ekki viss. Allavega, á leiðinni heim, þá
sagði ég honum hvað ég elskaði hann heitt. Hann setti hendina utan um
mig, en svaraði mér ekki. Ég veit ekki hvað í fjandanum það á að þýða,
því ég var nú kannski að vonast til að hann myndi segja að hann elskaði
mig líka eða eitthvað. Við komum loksins heim og ég var farin að spá í
hvort hann ætlaði að dömpa mér. Ég reyndi að fá hann til að tala, en
hann kveikti bara á sjónvarpinu. Þá gafst ég upp og fór í rúmið. Mér til
mikillar undrunar þá kom hann upp til mín um það bil 20 mínútum seinna.
Við gerðum það, en hann virtist ennþá vera utan við sig. Eftir sexið;
dauðlangaði mig að hundskamma hann, en ég grét mig bara í svefn. Ég veit
ekki hvað ég á að gera lengur. Ég meina, í alvöru. Ég held að hann sé
farinn að halda framhjá mér.
Hans hlið á gærkvöldinu:
Manchester tapaði. Ég fékk þó að ríða.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home